Fyrsti í aðventu
27.11.2016 | 21:41
Þó ég sé ekki þekkt fyrir að vera hið ýktasta jólabarn þá ætla ég að viðurkenna að hátíðarnar eru alltaf yndislegar og aðventan byrjar hlýlega..
Mögulega vegna þess að ég er ekki timbruð í dag og ég nennti að kveikja á kerti en ég gef ekkert upp. Fyrsti aðventusunnudagurinn nýttist að minnsta kosti vel í þetta skiptið og ég ætla að enda hann á að leyfa minningargreininni sem ég skrifaði til ömmu, sem við kvöddum fyrir rúmri viku, að lifa hérna inni aðeins lengur...
Elsku amma Inga
Að hafa átt jafn umhyggjusama og góða ömmu eins og þig eru forréttindi. Þið afi tókuð okkur systkinum ávallt opnum örmum í einstakri ró og frið á Bræðraborgarstígnum og fyrir Grafarvogsbúa eins og mig voru þið hjartað í miðbænum. Sá staður verður mér svo kær að eilífu því þar lifir þessi hlýja og allar þær minningar sem þið sköpuðuð með mér.
Ég verð þér ævinlega þakklát fyrir þessar minningar en fyrst og fremst verð ég þér þakklát fyrir að vera virðulega, hógværa og fallega fyrirmyndin sem þú varst og verður alltaf. Að lokum vil ég þakka þér fyrir að hafa alið upp þann góða og vel gefna son sem hann pabbi minn er. Það er enginn jafn ráðagóður og áreiðanlegur eins og hann. Það hefur hann frá þér og afa.
Ég mun taka rauða varalitinn með mér hvert sem ég fer í heiminum, eins og þú. Við sjáumst svo seinna amma mín, takk fyrir allt.
Þitt barnabarn Fanný Ragna
Komandi dagar eru áminning á það að vera þakklátur fyrir fólkið sitt.. Njótum vel x
Ingveldur Gröndal 8.11.2016
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Praise the president
9.11.2016 | 15:10
Ef ég skil þetta rétt eftir vægast sagt sturlaðar staðreyndir sem hafa poppað upp á samfélagsmiðlum í dag þá...
kaus valdamesta embætti heimsins yfir sig mann í afneitun sem talar fyrir kynþáttahatri og kvenfyrirlitningu. Hann ætlar að berjast fyrir auknum borunum eftir olíu því hann trúir ekki á global warming. Getur einhver komist að því fyrir mig hvort hann trúir á jólasveininn?
Á þessum degi árið 1989 féll Berlínarmúrinn og 27 árum seinna kýs USA forseta sem vill byggja múr við Mexíkó og láta mexikana borga fyrir það. Hann ætlar að rifta nýgerðu samkomulagi við Íran, sem getur sett allt á annan endann í Miðausturlöndunum.
Mike Pence sem er þá varaforsetaefni Bandaríkjanna skrifaði undir stranga fóstureyðingarlöggjöf í Indiana og telur svo að samkynhneigð megi lækna með meðferð. Einmitt. Að lokum fordæmdi hann Disney fyrir áróður í teiknimyndinni Mulan þar sem boðskapurinn er að stelpur standi strákum jafnfætis. Hann kann greinilega að velja sér sambærilegt samstarfsfólk.
Ég myndi frekar kjósa yfir mig manneskju sem kæmi mér á götuna, naktri fyrir utan bæjarins bestu, heldur en að kjósa mann sem stjórnar með annarri eins fyrirlitningu.
Í dag er ég þar af leiðandi vandræðalega þakklát fyrir forseta Íslands, sem nýlega afþakkaði launahækkun sem hann hafði ekki þörf fyrir til að sína gott fordæmi. Ó hvað ég vona að stjórnmálafólkið okkar sameinist núna, hvernig sem stjórnarmyndun fer, í sátt og samlyndi og sýni svona fólki eins og þessum ónefnda hér að ofan gott fordæmi.
Ég mun sennilega seint sjá eftir atkvæðinu mínu sem fór til Guðna, fyrir utan að það var víst ógilt sökum myndskreytingar. Síðan hvenær er bannað að tjá ást sína með litlu hjarta? Æ það er að minnsta kosti hugurinn sem gildir.
Okkar forseti
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mengunarmartöð
7.11.2016 | 09:56
Í dag getur allur sá aragrúi förðunarfræðinga litla Íslands fagnað því að búa ekki í Delí þar sem íbúar neyðast til að ganga með andlitsgrímur vegna ógnvænlegrar mengunar.
Svo mikil svifryksmengun liggur yfir borginni að skólum hefur verið lokað og íbúum er vinsamlegast ráðlagt að leggja niður varalitablýantana og skella á sig grímunum. Já eða halda sig inni.
Það vill oft virðast fjarri að lesa fréttir frá Indlandi þegar maður býr á einangraðri eyju en svo læðist skellurinn að manni því við búum víst öll undir sama himni. Himni sem við erum öll í sameiningu að hafa áhrif á.
Hér á landi er svifryk aðallega afurð bæjarumferðar. Já ég sagði svifryk á Íslandi. Og bæjarumferð! Við erum víst ekki þekkt fyrir það að hjóla eða taka lest. Hvað þá að standa upp fyrir gömlu fólki í strætó. Gamla fólkið kann ekki að mála sig. Þau hljóta að geta staðið í strætó, enda ekki búin að læra að "highlite-a" sig né "counture-a" svo þau kippa sér varla upp við smá andlitssvita.
Svo keyrum við smábílana okkar eins og við fáum borgað fyrir það og greiðum fyrir að geyma þá frekar við Keflavíkurflugvöll þegar haldið er í frí í stað þess að sameina í flugrútuna - því það kostar annað nýrað í hana. Verðmunurinn ekki svo mikill að það borgi sig. Eða hvað?
Reynslan segir okkur að martraðirnar gera sjaldan boð á undan sér en setningin "ég hélt að þetta gæti ekki gerst fyrir mig - þar til það gerðist" er oft sögð. Í þessu samhengi hefur boðið hinsvegar borist og nú þarf að bregðast við. Svíar eru t.d. löngu byrjaðir að flokka allt rusl - ekki bara dagblöð og pizzakassa.
Náttúran er undirstaða lífsins og lífið er meira virði en þriðjudagstilboð á Dominos. Við þurfum að setja þessi umhverfismálefni í forgang.
Eða haldið áfram að lýta á björtu hliðarnar. Við þurfum að minnsta kosti ekki að mála okkur ef við þurfum að ganga með andlitsgrímur undir berum himni!
Ólafía í mengunarmartröð - Skólum lokað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)